Ellefu lífsreglur Bill Gates
Bill Gates, forstjóri tölvurisans Microsoft, hélt eitt sinn
fyrirlestur fyrir unglinga í gagnfræðaskóla í Bandaríkjunum.
Þar talaði hann um reglurnar ellefu sem þau myndu aldrei læra á
skólagöngu sinni en þyrftu nauðsynlega að kunna
til að komast af í lífinu.
1. Lífið er ekki réttlátt, reyndu að venjast
því.
2. Veröldinni er sama um þitt sjálfsálit. Allir ætlast til
að þú áorkir einhverju áður er þú ferð að vera ánægður með
sjálfan(n) þig.
3. Þú munt ekki þéna fjórar milljónir á ári strax þegar þú
útskrifast úr skóla og þú verður ekki framkvæmdastjóri fyrr en þú
hefur unnið fyrir því.
4. Ef þér finnst kennarinn þinn strangur og erfiður, bíddu
þangað til þú færð yfirmann.
5. Að snúa hamborgurum á skyndibitastað er ekki fyrir neðan
þína virðingu. Amma þín og afi áttu til annað orð yfir það að snúa
hamborgurum, þau kölluðu það TÆKIFÆRI.
6. Ef þú klúðrar einhverju, þá er það ekki foreldrum þínum
að kenna, "hættu þessu væli og lærðu af mistökunum".
7. Áður er þú fæddist voru foreldrar þínir ekki svona
leiðinlegir eins og þeir eru núna. Þeir urðu svona eftir að hafa
borgað fyrir uppeldið þitt, þvegið fötin þín, þrifið til draslið
eftir þig og hlustað á hvað þú ert cool og hallærisleg/ur. Svo áður
en þú og vinir þínir bjargið regnskógunum og leysið heimsmálin,
reyndu þá að taka til og koma reglu á herbergið þitt.
8. Það getur vel verið að skólinn útskrifi bæði sigurvegara
og tapara en lífið gerir það ekki. Í sumum skólum er hægt að taka
sama prófið aftur og aftur, þannig er þetta ekki í
atvinnulífinu.
9. Lífið skiptist ekki í annir og þú munt ekki hafa frí öll
sumur. Mjög fáir samstarfsmenn munu hafa áhuga á að hjálpa þér að
finna sjálfan(n) þig. Gerðu það í þínum eigin tíma.
10. Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveruleikanum
þarf fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna.
11. Vertu vingjarnleg(ur) við nördana í skólanum, það endar
mjög líklega með því að þú þarft að vinna hjá einhverjum
þeirra.
Kveðja, Bill Gates, nörd í skóla...